Á Hverfanda Hveli <$BlogRSDUrl$>

Á Hverfanda Hveli

Friday, May 05, 2006

Whiskey and whine, you've got me this time...

Ok... kannski kominn tími á blogg. Ég er ekkert búin að blogga frekar lengi, er búin að vera að bíða eftir því að mér liði aðeins betur og ég hefði eitthvað skemmtilegt að segja og gæti verið jákvæð og einhverjum til gagns sem er að lesa þetta en það hefur eiginlega ekki orðið, allavega ekki enn. Undanfarinn mánuður er búinn að vera frekar erfiður. Kærastinn minn er að flytja úr landi í nokkur ár, ég er búin að missa vinnuna, ég er að reyna að ljúka önninni í skólanum og er í prófum núna, bróðir minn er fluttur inn hjá mér tímabundið mér til endalauss ergelsis ;) (ég er eins og kettirnir, meika ekki neinar breytingar)... þráðurinn í mér hefur styst undanfarið niður í sirka 2 mm. Ég er búin að reyna að halda mig við kúrinn og ekki að skemmileggja fyrir sjálfri mér sem virðist af einhverjum ástæðum vera mín helsta frumhvöt. Ég hef samt svona nokkurn vegin haldið mig réttum megin við lögin. Þangað til í kvöld það er að segja...

Um daginn, þ.e.a.s 22. Apríl framdi ég fyrsta skipulagða svindlið mitt. Það var fermingarafmæli hjá mér og ég ákvað að fá mér í glas og skemmta mér. Þetta var reyndar skemmtilegasta kvöld sem ég man eftir í langan, langan tíma og því er mér ómögulegt að sjá eftir því að hafa svindlað, og ekkert nema gott um það að segja. Maður verður að stíga út af sporinu stöku sinnum ;)

Ég hefði samt betur sleppt því, ég á voðalega erfitt með að koma mér aftur á sporið. Dagarnir byrja voðalega vel hjá mér, og síðan er ég búin að borða of mikið brauð, of mikið extra, of mikið hitt og þetta áður en ég veit af. Það er bara svo erfitt að halda sig á beinu brautinni þegar maður á svona erfitt eitthvað og allt er svo ómögulegt. Þá er ég bara neikvæð og eins og ég sagði áður, þá á ég mikið erfiðara með að gera vel við sjálfa mig þegar ég er neikvæð.

Æi ég á samt ekkert hrikalega erfitt þegar ég ber mig saman við aðra sem mér dettur í hug, það á enginn auðvelt líf alla sína hunds og kattartíð. En ég er svo mikill kjói eitthvað að þegar svona Dóminó effekt fer af stað og hlutirnir fara bara að hrynja hjá mér, einn af öðrum, þá vil ég bara sitja með hendur í kjöltu og gera ekki neitt. Loka bara augunum og þá er lífið ekki í rúst. Ég vil eyða peningum (og ekki í kál og matvörur!) og borða úti á hverju kvöldi og fara í brúnkuklefa og handsnyrtingu og hárgreiðslu. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki gert þetta er ekki sú augljósa skynsemisástæða að ég ætti að spara peninga því ég veit ekki hvenær ég fæ aðra vinnu. Þvert á móti hugsa ég sem svo að ég verði að flýta mér að eyða peningum út í loftið á meðan ég get! (rugluð...) Ég er einfaldlega komin í einhverja lægð sem gerir það að verkum að ég nenni þessu ekki. Ég nenni ekki í klippingu, nenni ekki í brúnkuklefa... nenni engu.

Ég vann mér inn 5 kílóa verðlaunin mín í síðustu viku. Pantaði mér yfirdýnur á netinu fyrir rúmið mitt sem er mig lifandi að drepa með gormapoti og almennri óþægð. Þær eru ekki komnar enn reyndar en ég á von á þeim hvað og hverju. Ég ætlaði að kaupa mér föt en ég er í neikvæðniskasti sem gerir það að verkum að öll föt eru ljót. Ég er búin að skoða í öllum búðum og þar er alveg stórmerkilegt að öll föt eru hreinlega bara ljót. Sem er frekar óheppilegt því að annar hvati af þessum eilífðarpirringi hjá mér er að fötin mín fara mér öll ekkert sérstaklega vel lengur. Allar gallabuxurnar mínar eru orðnar aðeins of stórar og poka hér og þar og láta mig virðast vægast sagt undarlega í laginu. Ég tók kast um daginn þegar ég kom heim úr vinnunni og henti helmingnum af fötunum mínum í ruslið. Kannski eilítið vanhugsuð ákvörðun en mér leið betur í smastund á eftir. Það er kannski málið. Hreinsa bara til hjá mér og byrja upp á nýtt.

Samt merkilegt að ég sé að leggja allt þetta á mig til að léttast (þó undanfarið megi nú deila um hversu hart ég hef lagt að mér... ahem), en svo verð ég bara daprari með hverju kílóinu sem yfirgefur mig. Það bara hefur slæm áhrif á mig að líða eins og ég líti aldrei vel út. Eins og fötin mín passi mér ekki og ég sé hálf svona sjoppuleg alltaf.

Það vinnur eldgamall kall á bensínstöðinni í hverfinu mínu sem er rosalega skotinn í mér og var alltaf að reyna að fá mig til þess að fara á stefnumót með frænda sínum sem væri víst á svipuðum aldri og ég. Ég sé hann alltaf öðru hverju og þegar ég kom um daginn á stöðinni hljóp hann til mín og spurði hvort ég væri í megrun, því ég væri að grennast svo mikið. Það er gott að það er allavega einhver sem tekur eftir!! :) Ég neitaði náttúrulega fyrir það að vera í megrun eins og sönnum geðsjúklingi sæmir og þóttist vera agalega hissa að ég hefði grennst. Ég. Manneskjan sem vigtar sig oftan en 15 anorexíusjúklingar samanlagt. En jæja... a girl's gotta have some mystery ;)

En já... dagurinn í dag var extra ó-danskur. Ég fékk mér tvær skálar af morgunkorni í morgun, og borðaði síðan ekkert fyrr en ég pantaði mér pítsu í kvöldmatinn!!! 'Eg á ekki til orð yfir sjálfri mér stundum, ég sver það. Æi, ég átti slæmt kvöld... við skulum bara segja það og fyrirgefa mér síðan :p Ég ætla að vera góð....

En svona lítur prógressinn á danska kúrnum út



og svona lítur prógressinn út síðan ég byrjaði í átakinu í haust




Þessi seinni lítur nú óneitanlega betur út ;)

Until we meet again...


Comments:
Hæ hæ, jæja nú ætla ég að koma með æðislega skemmtileg ráð sem er alltaf svo gaman að heyra og þetta eru ráð sem eiga víst alltaf að virka sama hvað er að hjá manni en jæja here goes: í fyrsta lagi þá áttu náttúrulega að hugsa jákvætt alveg sama þó allt sé hræðilegt þá skaltu hugsa jákvæt, í öðru lagi þá áttu að fara út að ganga, það bætir allt í þriðja lagi áttu að fara í sund ef gangan bætir ekki þá er sundið alveg öruggt að virka. svo í fjórða lagi að þegar á botninn er komin þá er eina leiðin upp á við og í fimmta lagi blablablablablablabla. Ég veit ekki hvað ég er búin að heyra þetta oft og fólk lætur alltaf eins og það sé að segja mann einhvern stóra sannleik og manni hafi nú aldrei dottið það í hug að fara í gönguferð. Elsku kerlingin mín það er erfitt að hugsa um megrun þegar hlutirnir eru greinilega alveg ómögulegir. Hverjum langar að hugsa um að borða tvær 30 gr brauðsneiðar þegar kærastinn manns er að fara frá manni í þrjú ár og ekki til Húsavíkur heldur til Japans. Prófatími er alveg glataður megrunartími og ekki er skemmtilegra að vera blankur. en jæja krútt þá ef þú ert ekki lengur í vinnu þá skaltu koma heimasækja okkur bráðum, það er nefnilegast best að koma og heimsækja mig á daginn, ég er yfirleitt orðin svo þreytt á kvöldin að ég stend ekki í fæturnar. ég er samt svo stolt af þér að halda samt áfram að reyna og gefast bara ekki alveg upp, og gott hjá þér að skrifa á bloggið, en þú þarft endilega að fá þér nýjar buxur ;) Sjáumst vonandi bráðum, Nanna Dögg
 
hei og annað, þá finnst mér að þú eigir bara að hafa neðri teljarann, þessi efri er ekki nándar nærri skemmtilegur ;)
 
Post a Comment

Archives